Saturday, March 9, 2013

Kuala Lumpur og Tæland

Við komum til Kuala Lumpur seinni part um kvöld og hótelið okkar var ekkert sérstakt, sturtan var beint fyrir ofan klósettið svo ef við fórum í sturtu þá varð allt baðherbergið blautt en annars var herbergið nokkuð hreint. Okkur fannst Kuala Lumpur ekkert sérstök, frekar skítug og fólk var ekkert sérstaklega vingjarnlegt. En við fórum allavegana upp í Pedronas turnana sem eru hæstu tvíburaturnar í heiminum,ótrúlega flott útsýni yfir borgina. Við eyddum mestum tíma inni í mollunum og prófuðum bogafimi og fórum í bíó. Svo flugum við til Phuket og gistum á mjög flottu hóteli í eina nótt, ótrúlega gott að vera á góðu hóteli og ná góðum svefni. Svo um morgunin lögðum við af stað til Koh Lanta sem er eyja rétt fyrir utan Phuket þegar við komum á hótelið var tekið ótrúlega vel á móti okkur. Það eru hjón sem eru æðisleg, eru til í að gera allt fyrir okkur. Herbergin voru mjög hrein og fín og morgunmaturinn geggjaður! Fyrsta daginn fórum við bara á ströndina og slökuðum á. Svo leigðum við okkur vespu og keyrðum um eyjuna, ótrulega gaman! Allir á eyjunni eru ótrúlega yndælir og hjálpsamir. Við erum bara búin að vera að njóta sólarinnar og slaka á í þessa 4 daga sem við erum búin að vera hérna. Ég og Auðunn borðum fátt annað en Pad thai og ég er komin með æði fyrir kókoshnetushake! En í dag fórum við að snorkla á eyju sem heitir Koh Rok sem var bara nokkuð gaman, kóralrifin voru samt ekki jafn flott og í Ástralíu en að Koh Rok sjálf var ótrúlega falleg og sjórinn var ótrúlega tær! Á eyjunni voru einnig villtir Komodo drekar, fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta risaa stórar eðlur! Við verðum svo hérna á Koh Lanta í 2 nætur í viðbót og þá höldum við til Koh Tao.
Kveðjur úr paradís,

Svandís Ösp, Auðunn og Stefán Óli

No comments:

Post a Comment