Sunday, January 27, 2013

Aðeins 2 dagar!

Ætla að reyna að vera dugleg og blogga svo þið sem sitjið heima getið fylgst eitthvað með okkur! En fyrir ykkur sem vita kannski ekki alveg hvert við erum að fara þá er þetta svona: við byrjum á því að stoppa hjá Fjólu og Neil í oxford í eina nótt og fá góð ráð fyrir ferðina! Svo er ferðinni haldið til Sydney og við verðum þar í svona 13 daga, þaðan fljúgum við til Cairns þar sem við fáum Campervan til að búa í næstu 2 vikurnar og við ætlum að keyra hluta af austurströnd Ástralíu til Brisbane!
Þar með endar ferðinni okkar í Ástralíu og við höldum til Singapore og ekki er ákveðið hvað við ætlum að vera lengi þar! Svo er líklegasta planið Malasía-Tæland-Laos-Víetnam og svo loks Kína!
Þetta er frekar gróft plan á ferðinni en þið getið lesið um allt þetta seinna :D en við sjáumst víst bara næst í lok apríl! :D

Spennukveðjur,

Svandís Ösp, Auðunn og Stefán Óli

No comments:

Post a Comment