Jæjaaa núna ættum við að vera á leiðinni til Sydney en nei við erum her á Park inn í London! Það var víst eitthver bilun í vélinni okkar( sem betur fer fannst ) en ég held að við eigum að fljúga af stað klukkan 15 í dag, vona ég! En þrátt fyrir þetta vesen í gærkvöldi áttum við æðislega 2 daga hjá Fjólu og Neil. Við röltuðum um Oxford og keyptum svona hitt og þetta sem okkur vantaði. Það var einstaklega erfitt fyrir mig the shopaholic að versla ekki meira en strákarnir studdu mig og drógu mig út úr primark eftir að hafa verslað það sem þurfti og héldu mér frá hinu búðunum svo sem river island, new look og fleiri :) Annars er ekkert margt að frétta frá okkur nema við bíðum spennt eftir því að komast til Sydney eftir öll góðu ráðin frá Fjólu og Neil hvar við ættum að borða og hvað við ættum að gera!
Kveðja fastirferðalangar,
Svandís Ösp og sofandi Auðunn og Stefán Óli
Hér eru linkar af Video blogginu hjá Stefáni :)
Dagur 1: http://www.youtube.com/watch?v=dU37gACSV0I&feature=share
Dagur 2:http://www.youtube.com/watch?v=2LhM7H5QVoQ&feature=share
No comments:
Post a Comment