Eftir langa mæðu komumst við loksins til Ástralíu með góðu
stoppi á 5 stjörnu hóteli í Kuala Lumpur. Við komum klukkan 10 um morgun i
rigningu og 16 stiga hita, mér til mikillar gleði. Allar töskur komust á
leiðarenda og við héldum á hostelið sem er aðeins fyrir utan miðbæ Sydney. Það
leit bara mjög vel út og er hreint og fínt! Við höfðum rétt orku til að fá
okkur McDonalds, sem er hérna við hliðina á hostelinu, og svo steinsofnuðum
við. Í gær fórum við svo í miðbæinn og fórum á Haymarket held ég að hann heiti
og svo skoðum við China town. Við ákváðum svo að fara á Tælenskan stað sem
Fjóla hafði mælt svo vel með í hádegismat, svo loksins fundum við hann eftir
svona 3 km göngu og hann var lokaður! En við fundum mjög góðan stað sem bauð
upp á Víetnamskan mat. Svo rákust við á garð sem heitir Victorias park (held
ég) og fengum þá loksins að sjá smá í
sólina og komum okkur fyrir þar og sleiktum sólina í nokkrar mínútur. Svo
rákust við á University of Sydney, ekkert smá flottur campus hefði ekkert á
móti því að vera í honum. Eftir alla þessa göngu vorum við nánast uppgefin og
fórum heim á hostel. Einhvernveginn tókst Auðunni samt að draga mig með út að
hlaupa í sólinni sem ákvað að láta sjá sig! Við vorum svo öll sofnuð klukkan
20.
Í dag vorum við greinilega aðeins byrjuð að venjast
tímamismuninum því við vorum bara vöknuð klukkan 6. Við ákváðum að fara í
dýragarðinn í dag fyrst að það leit ekkert út fyrir mikilli sól í dag. En við
höfðum rangt fyrir okkur því sólin skein á okkur í allan dag og við fengum 30
stiga hita. Við fórum og skoðuðum óperuhúsið og við féllum fyrir borginni! Enda
ótrúlega falleg borg. Við tókum svo ferjuna í dýragarðinn og sáum allskonar dýr
svo sem tígrisdýr, hvíta blettatígra, mörgæsir, apa, sæljón, allskonar eðlur og
margt fleira, vorum allavegana þar frá 11- 17. Við ákváðum að koma okkur svo
bara aftur upp á hostel og fá okkur kvöldmat. Hingað til höfum við fílað
Ástralíu mjög vel, það eru allir ótrúlega afslappaðir og vingjarnlegir hérna.
Alltaf einhver tilbúinn til að vísa okkur villtu ferðalöngum veginn. Svo erum
við að spá í að fara kannski á Bondi beach á morgun ef sólin leyfir J
Kærar kveðjur í snjóinn úr sólini,
Svandís Ösp, Stefán Óli og Auðunn
Ps. getið séð myndir á facebook :)
No comments:
Post a Comment